
Þjónusta Fönix
Á undanförnum árum höfum við verið svo heppin að fá að vinna með skemmtilegu fólki að skemmtilegum og fjölbreyttum verkefnum víða um Snæfellsnesið.
Við leysum bæði einföld og flókin verkefni — hafðu samband og fáðu tilboð.
Hafa samband
Stálsmíði
Öll almenn járnsmíðavinna, hvort sem úr svörtu eða ryðfríu stáli.
Suðumenn með mikla reynslu — tökum að okkur stór og smá verk.

Rennismíði
Öll almenn rennismíði t.d. skrúfuöxla, rennsli á línuskífum o.fl.
- ✓Harrison Alpha 550S — 3 metrar á milli odda

Glussakerfi
Áralöng sérfræðiþekking á glussakerfum. Tökum að okkur upptektir á glussadælum og glussamótorum eins og Valmet, Poclain og Hagglund.
Í samstarfi við Vökvatæki ehf. erum við þjónustuaðilar Valmet/Black Bruin á Íslandi.
- ✓Valmet · Poclain · Hagglund
- ✓Þjónustuaðilar Valmet/Black Bruin á Íslandi

Slöngusmíði
Áralöng reynsla af smíði og pressun á glussa- og þvottaslöngum.
Við eigum öll tilheyrandi sérverkfæri ásamt góðu úrvali af slöngufittings, bæði ryðfríu og galvaniseruðu.
Við afgreiðum slöngur hratt og vel á meðan þú bíður.
- ✓2víra 1/4" – 1"
- ✓3víra 5/8" – 3/4"
- ✓4víra 1"
Önnur þjónusta
Bátaviðgerðir
Við tökum upp báta allt að 45 tonnum með gámalyftara. Gámalyftarinn er af gerðinni Kalmar Contmaster DRS 4531-s5. Erum vel útbúnir með stroffur og herðatré til að taka mjög breiða báta.
Hægt er að fá aðgang að háþrýstidælu til að þrífa bátinn og báturinn getur einnig farið í geymslu við húsið okkar.
- ›Kalmar Contmaster DRS 4531-s5
- ›Geymsla í boði
Hátíðnihreinsir
Bjóðum upp á hátíðnihreinsun fyrir kæla, túrbínur og fleiri vélahluti.
- ›333 lítra hreinsi
- ›Ber allt að 250 kg þunga hluti
Rafvirkjar
Lítið eða stórt verkefni sem þarf að leysa eða breytingar framundan? Rafvirkjarnir okkar veita alhliða þjónustu á sviði raflagna.
- ›4 löggiltir rafvirkjar
- ›Fyrirtæki og heimili
Lyklasmíði
Almenn lyklasmíði á öllum helstu lyklategundum á meðan þú bíður.
Litablöndun & málningarvörur
Við seljum allar helstu málningarvörur frá Slippfélaginu ásamt völdum vörum frá Málningu og Tikkurila.
Við blöndum litina á staðnum og getum því selt þér alla regnbogansliti!
Komdu við í Fönix og nældu þér í nýjustu litaspjöldin frá Slippfélaginu eða jafnvel litaprufu.
Ertu með verkefni í huga?
Hafðu samband og við finnum lausn — hvort sem um stórt eða lítið er að ræða.

